Njóttu ferðalagsins!

  • Frábær bók hjá þér.
  • Fokk hvað þú ert með þetta.
  • Skemmtileg lesning, margt gott og umhugsunarvert.
  • Ég las hana í einum rykk og lagði bókina frá mér með gleði í hjarta. Gangi þér áfram vel á þinni góðu braut sem er jákvæð, eflandi og hugmyndarík.
  • Það var ánægjulegt að lesa bókina. Boðskapurinn er skýr og Gaui er ekkert að flækja málin.
  • Gaui er ekkert að sykurhúða hlutina og heldur ekki að fara í neinar málalengingar. Hans skilaboð eru að opna augun og hugann til að njóta hverrar stundar sem lífið býður upp á.
  • “Feel good” bók með fallegan boðskap sem á vel við í dag.
  • Tilvalin fyrir alla, ekki bara pabba.
  • Ég tengi við þessa bók.
  • Mjög skemmtilega skrifuð og góð. Tengi vel við kaflann um að einfalda lífið, er alveg þar sjálf. 
  • Ekkert torf, heldur einföld lesning með skýrum skilaboðum.

Bókin er skrifuð af fjögurra barna föðurnum Guðjóni Svanssyni, sem áttaði sig á því þegar hann var orðinn þriggja barna faðir að hann var að fara á mis við það sem skipti hann mestu máli í lífinu. 

Hann breytti um lífstíl, sagði upp vinnunni og fór í langt ferðalag með fjölskyldunni. Njóttu ferðalagsins er byggð upp á stuttum en hnitmiðuðum köflum. Hún byggir á reynslu höfundar af því að vera pabbi og sýn hans á föðurhlutverkið.

Bókina “Njóttu ferðalagsins” er hægt að kaupa með því að senda okkur pöntun á gudjon@njottuferdalagsins.is. Bókin kostar 2.900 kr og við sendum hana frítt um allt land.